Komið inn og slakið á
14.10.2006 12:50:13 / ernaþ

Nýjir tímar

Hér með tilkynni ég að ég ætla að hætta að blogga hér og er komin með nýja síðu (þökk sé Markúsi sykurpúða)

Ég bíð ykkur velkomin á hina nýju og ennþá flottari síðu :

www.fmjt.sugerpillow.com

Þarna mun ég blogga og setja inn myndir svo eitthvað sé nefnt

Check out my new site - hope you like it

:haha::haha::haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 08:03:09 / ernaþ

Solo para Kjartan ;)

Jæja kæru lesendur. Hún Erna hefur ákveðið að blogga í þriðju persónu í dag eftir að hún fékk áskorun frá vini hennar honum Kjartani, sem er víst margfrægur sjálfur fyrir að blogga í þriðju persónu.

En það er nóg að gera hjá Ernu þessa dagana. Hún er alveg á fullu í skólanum (sem er bara gaman sko, mínus einn til tveir áfangar, er það ekki Berglind?? )                Hún er líka komin í nýja vinnu, sem hún byrjar í á mánudaginn og felst í því að sinna litlum sætum börnum á leikskólanum Holtakoti sem er á Álftanesi.

Erna er búin að uppgötva nýjan stað niðri í bæ, þökk sé Berglindi og félögum. Hún er núna 2 kvöld í röð búin að fara á gamla góða DUBLINER´S niðri í bæ :D8):lol: Hugsiði ykkur, þetta er staður sem henni datt aldrei í hug að hún myndi nokkurntíman fíla að fara á.

Erna er líka búin að komast að því að hún er að verða stór stelpa þar sem henni var í vikunni boðið í þrítugsafmæli sem á sér stað núna næstkomandi laugardag. Hún ætlar að sjálfsögðu að mæta, enda er hún ekki þekkt fyrir að hafna góðu boði, er það nokkuð??? Nei held aldeilis ekki :haha:

En allavegana nú þarf Erna að fara að vinna, á hótelinu þar sem  hún verður að vinna aðra hverja helgi í vetur. Hún biður að heilsa ykkur í bili og vonar að þið látið heyra í ykkur um helgina - OFT!!!

án efa eitt súrasta blogg sem hún (ég;)) hefur skrifað

:haha::haha::haha::haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 09:21:45 / ernaþ

Gott kvöld :)

jæja gott fólk hvað er í gangi.... :D Hér er líf mitt síðustu daga í punktum!!!

  • Er að meika það í skólanum...
  • 9.5 í Farbókunum/bóklega hlutanum
  • 8,7 í Ferðamálafræði ;)
  • Er að rembast við að læra alveg á fullu á milli vinnu og skóla og svo eftir skóla, það er bara harkan núna!!!
  • Fór á Magna og Dilönu og verð að segja flottir tónleikar en illa skipulagt!
  • Fór líka á KFNÖRD og skemmti mér konunglega, strákarnir eru alveg yndislegir og stóðu sig vel þrátt fyrir tap.
  • Hitti Óla á leiknum og Dalílu sætu múslu
  • Ég fór út í gær með Bryndísi minni og Unnari.
  • Fórum í keilu með Flosa og Óla og Flosi sýndi snilldartakta á keilubrautinni
  • Fórum svo niðrí bæ að dilla ég og Bryndís og það er alltaf gaman :haha:
  • Svo hittum við Flosa og Óla aftur og þá var Flosi orðinn DRUKKINN ahaha ekkert smá fyndinn þessi elska í glasi
  • Er í skólanum núna og er að fara í tíma þannig að við heyrumst bara  :!:

En eitt í lokinn: Til Hrefnu:

-Hey Mikki af hverju ertu  alltaf í buxum??

-Átti að vera hey andrés af hverju ertu aldrei í buxum

Hún Hrefna er óborganleg


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 10:46:09 / ernaþ

Ef þið hafð ekkert að gera

1.Hvað kallarðu mig?

2..Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?

3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?

4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?

5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?

6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?

10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?

11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?

12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?

13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?

14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

16. Hvernig stráka fíla ég?

17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

18. Hvað er mest einkennandi við mig?

19. Hvaða búðir elska ég að fara í?


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 00:16:29 / ernaþ

Hey let´s all go to the beach

Góða kvöldið(eða góðan dag ef þið viljið líta á það þannig):!::!:

Það er margt og mikið í gangi hjá mér þessa dagana... úff segi ég nú bara, en allt þetta sem er í gangi er skemmtilegt :D Skólinn er alveg á milljón, vorum í 1 prófi á mánudaginn og áttum að halda fyrirlestur. Svo erum við að fara í próf í Farseðlaútreikningum á morgun og ég var eimmit að koma heim af Dubliners þar sem ég og Berglind sátum sveittar við það að læra, á meðan hún Ólöf sat og las í mannfræði og okkur gekk mjög vel verð ég að segja.

Svo er það náttla frétt aldarinnar....Erna Þórarinsdóttir er að fara á Á MÓTI SÓL með DILÖNU sem verður á BROADWAY 8)8)8) En það gott fólk gerðist aðeins af því að í mínu lífi er yndisleg vinkona sem heitir BRYNDÍS. Þessi elska vissi hvað mig langaði gegt að fara og sjá yndin mín, en mali var að ég var föst í vinnunni og átti ekki pening....Haldiði ekki að þessi elska hafi farið á BROADWAY og keypt miða fyrir mig:haha::haha::haha: Takk æðislega fyrir mig elskan og ég hlakka brjálað til :!::!::!::!::!::!:

Helgin síðasta var alveg frábær... var að vinna aðeins út í sjoppu til að hjálpa þeim... fór í afmæli hjá Kristjáni Frey frænda (*sætisæti*), kíkti á ágætt djamm á laugardaginn sem hefði alveg mátt fara betur en var samt alveg stuð sko;) Sunnudagurinn var svo frábær alveg frá byrjun til enda. Ég, Anna Lilja, Bubba og Maggi ákváðum eftir helgardjammið að skella okkur í BLUE LAGOON og það var ekkert smá nice. Bara að slappa af og hafa það gott. Ég og Anna Lilja komumst meira að segja að því að þeir sem vinna í gæslunni þarna eru örugglega með starfsheitið LONE RAGNER :haha::haha::haha:

  • Er að fara í prófið á morgun, ég og Berglind.... Gangi okkur vil
  • Er að vinna um helgina á hótelinu
  • Ætla samt að fara á Á móti sól og Dilönu
  • Við ætlum jafnvel út að borða fyrst
  • Það er útborgun bráðum
  • Ég er að ljúka við að setja inn myndir héðan og þaðan, menningarnótt, afmælið hennar Hrefnu, Gaypride, London og fleira, endilega kíkið á myndirnar þær eru helvíti góðar

:haha::haha::haha:

Svona í lokin... tjekkið á þessum link hér, mega fyndið sko!! http://www.youtube.com/watch?v=XzozGG_AHNM


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 13:59:24 / ernaþ

Allt í gangi gott fólk

Vá heimurinn er svo lítill að það er ekki fyndið. Ég kynntist strák úti sem heitir Luis og er að vinna á útvarpstöð þar í bæ. Ég var að tala við hann á msn þegar hann spyr mig allt í einu hvort ég vilji ekki hlusta á hann aðeins. Ég segi náttla bara jú og ekkert mál og fer að hlusta á kallinn... neinei haldiði ekki að hann hafi bara skilað kveðju til mín í útvarpinu úti :D ekkert smá nett sko. Ekki nóg með það heldur heyrði annar vinur minn frá BCN þetta og sendi mér sms til að athuga hvort gæinn hefði verið að skila kveðju til mín... Já heimurinn er lítill hah :$

En annars er brjálað að gera hjá mér... skólinn alveg á fullu og vinnan öll að koma til.

  • Fór á laugardaginn í hitting hjá bekknum í MK og það var svaka fjör
  • Er orðin þreytt á alls kyns vesenum
  • Er í fríi alla helgina
  • Var að tala við Jose vin minn og hann er að hugsa um að kíkja í heimsókn á klakann
  • Barcelona hittingur annað kvöld...það verður fjör
  • var ég búina ð nefna að ég er í fríi alla helgina
  • Óska hér með eftir djammfélögum takk
  • Ætla svo pottþétt að fara að sjá Magna, Dilönu og félaga á Broadway... ekki láta þig vanta!

Eitt svona í lokinn.. hvernig finnst ykkur nýji BANNERINN minn þarna uppi ??

:haha::haha::haha:


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 10:54:39 / ernaþ

lille syge pigen

Góðan daginn gott fólk og til hamingju með veðrið. Já það er sko RIGNING á Íslandi í dag og við erum sko að tala um úrhelli. Ég sit hér í vinnunni og er að horfa út um gluggan og vorkenni bara elsku vinnumönnunum sem eru að vinna við að byggja upp þetta klassahótel sem ég vinn á ( www.hhapartmentshotel.is ).

En lífið er ljúft eins og venjulega. Vinnan er frábær og skólinn líka. Fólkið sem er með mér eru tærir snilingar og ekki sakar að hafa hana Berglindi mína á kantinum. Við erum að fara að hittast á laugardagskvöldið til að reyna að hrista saman hópinn og vonandi verður það hoppandi fjör.

Svo er það bara vinna um helgina, sem er fínt :D og kannski maður láti sjá sig einvherstaðar í bænum, en það fer allt eftir heilsunni. Finn að ´g er að verða pínu ponsu veik :$ en það reddast vonandi allt saman.

  • Magni í 4 sæti í RockStar en er samt að fara að meika það
  • Óli músla farinn með Sjöfn og Björgu út til London á Robbie Williams tónleika
  • Þriðjudags-og miðvikudagskvöldin voru snilldin ein og ég skemmti mér konunglega, og takk kvöldin allir sem nutu þeirra með mér
  • Skímóballið á laugardaginn var geðveikt
  • Lenti í smá strákaaveseni á ballinu
  • Sumir voru að hözzla á meðan aðrir voru að reyna að hringja símtöl með hægri skó af henni Bubbu
  • Tinna frænka verður módel hjá Ella klipparanum mínum á sunnudaginn, töff töff töff

Heyrumst um helgina elskur


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 17:08:29 / ernaþ

Rockstar er málið

*áfram Magni*

Þurfti bara að koma þessu frá mér... ekki það að ég hafi ekki öskrað nóg á miðvikudagskvöldið þegar það kom í ljós að maðurinn myndi fara í úrslitin!!!

Ég fór að horfa á herlegheitin á Sólon, með fullt af góðu fólki, þar sem FM 957 bauð upp á Magna og með því. Dagskráin byrjaði á raunveruleikaþættinum, svo þar á eftir kom "söng"þátturinn. Eftir þetta allt saman steig svo *Á MÓTI SÓL* á svið ásamt Hreimi úr Landi og sonum og Begga úr Sóldögg. Þeir skemmtu gestum og tóku sig bara vel út með skemmtilegustu ballhljómsveit Íslands, en það toppar ekkert hann Magna samt. Síðan komu úrslitin og heyrðist mér á mörgum að þau væru viss um að´Magni væri að fara heim, en hann sýndi þeim í 2 heimana og var aftur með flest atkvæði af keppendunum... ég hélt án gríns að þakið ætlaði af SÓLON vegna fagnaðar. Ég öskraði allavegana svo mikið að ég gat varla talað á eftir!

Annars er ekkert mikið að frétta, er í langþráðu FRÍI um helgina og ætla sko að njóta þess í botn sko! Langar geðveikt á SKÍMÓ á NASA annað kvöld og endilega bjallið í mig ef þið eruð geim. Ég veit fyrir víst að Sjöfn ætlar með!!!!

Svo er það vonandi roadtrip á sunnudaginn ef að veður leyfir...vonum það besta bara

l8ter


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 13:55:53 / ernaþ

Þreytt !!!!!

Vá hvað ég var ekki að höndla það að  vakna í morgun..þurfti að plokka í sundur á mér augun og skella tannstönglum í þau til að halda þeim opnum. En ég er með góða og gilda ástæðu fyrir þessari þreytu minni ( og núna er ég ekki að tala um vinnuna).

Í gærkvöldi eftir vinnu var ákveðið að fara á skemmtistaðinn NASA þar sem engir aðrir enPAPARNIR voru að leika fyrir dansi.  Ég reyndi mitt besta til að fá sem flesta til að skella sér með...og árangurinn varð ég, Hrefna, Bryndís, Unnar og Maggi. Við stelpurnar vorum sko komnar i byen um 11 leytið og settumst inn á HRESSÓ þar sem að Hráfn og Regnbogabirta fengu sér drykk. Eftir smá spjall og rólegheit á Hressó fórum við að hitta Unnar og kaupa miðana á ballið :haha: Við vildum ekki fara alveg strax inn þannig að við skelltum okkur inn á Café Paris, og aftur fengu stelpurnar sér drykk. Og ekki bara hvaða drykki sem er... nei alls ekki! Þær fengu sér sitthvorn bjórinn og svo fékk Hrefna sér STRAWBERRY DAQUIRY                                                  Þegar við komum svo inn á NASA var varla hræða þarna inni... en það var fljótt að breytast og salurinn fylltist af fólki. Eydís yndi kom, og Benni og Jói líka. Svo hitti ég Flosa og Bigga og við vorum öll í fjörinu upp við sviðið að dansa eins og Paparnir hefðu borgað okkur fyrir það. En litla Erna var orðin alveg svakalega þreytt þannig að þegar hljómsveitin tók hlé ákvað hún að fara heim. En þetta var drulluskemmtilegt ball og það er alveg á hreinu að ég er að fara aftur á PAPANA eins fljótt og ég get :haha:

POR FINAL :

  • Er að klára að setja inn myndirnar frá BCN, London, og svo frá hinum og þessum stöðum eftir að ég kom heim. Gaypride, Menningarnótt, Hráfn ammli og fleira. Linkarnir eru undir myndir hér til vinstri.
  •  Er í fríi 8 9 og 10 september og get ekki beðið eftir að sofa ÚT.
  • Kannski ég kíki bara í RoadTrip með nokkrum heppnum einstaklingum ef ég nenni því
  • Langar á Skímó á næstu helgi á NASA.
  • Nóg að gera á hótelinu og mér líkar bara vel
  • Hitti Heimir frænda og Kollu kærustuna hans... voru að fá sér hund.. Bruno og hann er algjör dúlla.

Fariði vel með ykkur og eins og mamma segir:

*það skiptir sköpum að fara á ball með PÖPUM*

:haha::haha::haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 10:31:47 / ernaþ

G - STAR RAW

Ég vil byrja á því að óska honum Magna alveg ógó mikið til hamingju með að hafa verið með flest atkvæði í RockStar-Supernova á miðvikudaginn. Ég held að þetta sé mjög mikið okkur Íslendingunum að þakka og ég legg til (og veit svosem að það verður gert) að við kjósum af ennþá meiri hörku í næstu viku :D

*ÁFRAM MAGNI*

Þessi vika er búin að vera mjög fín bara. Skellti mér á kaffihús á miðvikudagskvöldið með Óla, Unnari, Adda og Gunna. Svo lét par ársins loksins sjá sig (Adam og Liliana) og kíktu til okkar á Sólon þar sem við vorum að skemmta okkur mjög vel, takk fyrir kvöldið öll :*

Svo í gærkvöldi skellti ykkar einlæga sér í opnunarpartý/tískusýningu hjá hinni splunkunýju og drullutöff búð G - STAR RAW. Ég fór ásamt honum Óla og við mættum í okkar fínasta pússi upp í Loftkastala. Hátíðin/sýningin var haldin í stóra salnum/herberginu í Kastalanum, og þetta var mjög töff uppsetning. Í einum endanum var bar, þar sem maður gat gætt sér á vodka út í Orku, Breezerum og fleiru. Í sama enda var verið að kynna mótorhjól, og svo var snyrtivörukynning á staðnum líka. Í hinum endanum var sýningarpallurinn, eða RUNWAY-ið eins og þeir segja í úglöndum, og var hann eins og ferhyrningur. Maður gat staðið í kring eða inn í ef maður var nógu hugaður í það. Fyrir aftan þetta allt saman var svo stór skjár þar sem að myndband rúllaði á meðan tískusýningin var, og sitthvorm megin við skjáinn var svo hljómsveitin sem spilaði undir á meðan módelin gengu RUNWAY-ið :haha: Þetta allt saman mjög flott og mikið af fólki. Takk fyrir sýninguna Þorvaldur og takk fyrir boðið Óli :D

Eftir öll þessi herlegheit skelltum við okkur á kaffihús ásamt Flosa og Stebba. Eftir mikið labb í miðbænum komumst við að því að ekki yrði laust fyrir okkur á neinu kaffihúsi,  og vorum farin að örvænta, þegar allt í einu sáum við útundan okkur að það væri laust borð á Sólon og skelltum okkur þar inn. Eftir kaffi, kakó, kók og djúsdrykkju og MIKIÐ spjall ákváðum við að skella okkur heim :D En þetta var frábært kvöld og ég skemmti mér mjög velþ

Um helgina er ég svo að vinna en planið er nú að sýna smá lit og ekki fara heim að sofa eftir vinnu þessa helgina. Ég veit ekki með kvöldið í kvöld, en annað kvöld er með boðið í kokteilpartý og svo var ég búin að lofa að hitta hana Töru Lind mína

L8TER FOLKS

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 21:51:28 / ernaþ

Nú er komið haust...

Jæja þá byrjaði maður loksins í skólanum eftir LANGA LANGA LANGA bið. Þetta mun vera Ferðamálaskólinn í Kópavogi, og mér líst bara vel á þetta. Hún Berglind ást er með mér í þessu og við erum alveg að reyna að vera eins miklar kennarasleikjur og við mögulega getum, sitjum meira að segja fremst og allt saman 8| en þetta er nú allt í gríni gert, held við séum ekki alveg kennarasleikjutýpurnar:!:                                    En það eru nokkur kunnugleg andlit þarna, meðal annars stelpa sem átti einu sinni heima á Álftanesi og  2 konur/stelpur sem voru einu sinni að vinna í Hagkaup.

Annars er ekkert brjálað spennandi að frétta af mér núna. Þessi helgi var fríhelgin mín og ég naut hennar í botn. Komst samt að því í leiðinni að ég kann alls ekki að sitja kjurr og gera ekki neitt :D Á föstudagskvöldið fór ég í keilu með nokkrum vel völdum einstaklingum ... Heiðari, Dalílu, Kalla og Kjartani. Þetta var fínt kvöld fyrir utan það að ég sökkaði gjörsamlega. Var sko ekki að gera góða hluti þetta kvöldið.

Laugardagurinn var mjög nice. Fór í Smáralind á afmælishátíð Bylgjunnar með syni systur minnar, Smára og Andra. Síðan fórum við í bíó á Grettir 2, og það verður bara að játast að hún ef helvíti fín bara. Eftir bíóið fórum við og keyptum laugardagsnammi og komum svo heim og grilluðum pulsur. Um kvöldið fór ég í ammli til hennar Ólafar yndis og skemmti mér bara vel þar. Dró svo Töru Lind með mér niðrí bæ og við skemmtum okkur ógó vel. Ég sver það að við dönsuðum eins og brjálæðingar og töluðum við alveg slatta af fólki (aðallega karlmönnum samt). Þetta var fínt kvöld.

Á sunnudaginn var ég FRÆNKA ÁRSINS, og ég er ekkert að grínast með það. Eftir að hafa komið heim af djamminu (þó edrú) klukkan 5 um morgun, var ég vakin af yndinu honum Smára, litli frænda. Hann  var glaðvaknaður og tilbúinn í daginn og gaf mér ekki mjög mikinn tíma til að vakna. Við ákváðum að borða morgunmat, og eftir það fórum við vopnuð fötum og skóflum út í fjöru. Planið var að byggja sandkastala fyrir litla prinsinn, en eftir að hann sá bróður sinn á krabbaveiðum var ekki aftur snúið. Það endaði auðvitað með því að prinsinn veiddi pínuponsulítið krabbabarn, sem ég leyfði honum að taka með heim í fötunni.                                                              Eftir fjöruferðina fórum við að rembast við að fljúga flugdrekum og það gek nú misvel. Hans flaug eins og ekkert væri, en minn flaug bara EKKI!!                         Síðan var komið að því að fara í fótbolta og við vorum í því í alveg góðann klukkutíma. Eins og ég segi, FRÆNKA ÁRSINS.

Í gærkvöldi fór ég svo með Óla mínum í göngutúr niðrí bæ. Við löbbuðum upp og niður Laugarveginn, og á leiðinni til baka settumst við inn á B5 og fengum okkur hressingu. Þetta var alveg æðislegt kvöld og ég þakka Óla bara kærlega fyrir :lol:

En ég er að hugsa um að hætta í tölvunni, en eitt í lokinn

ÁFRAM MAGNI ... ÞÚ GETUR ÞETTA


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 18:44:56 / ernaþ

Stigastuð...

  • Kæru lesendur. Þið ykkar sem þekkja mig vitið kannski að ég er algjör hrakfallabálkur, og ein óheppnasta manneskja sem ég (og kannski þið) veit um. Og eftir atburði helgarinnar er ég viss um að ef þið mynduð fletta orðunum klaufi, óheppni og hrakfallabálkur upp í orðabók myndi koma upp mynd af mér.

Ég var semsagt stödd í afmælinu hjá henni systur minni sem var haldið á Glaumbar og allt í lagi með það. Allir í svakastuði og skemmtu sér vel. Nema hvað að þegar ég ætlaði að far að koma mér heim, og er að fara að labba út af Glaumbar þá gerist það. Ég stend efst í stiganumog er að fara að labba niður með honum Magga. Áður en ég veit af er ég bara að hrynja niður stigann með hausinn á undan mér og man ekkert fyrr en ég ligg neðst niðri. Þegar ég stend upp tek ég eftir að ég er með rispur út um allt, 50% líkamans þakið í marblettum og e´g er með skurð á lærinu:klikk: Eigum við eitthvað að ræða þetta.

Eftir að hafa pælt aðeins í þessu öllu saman hef ég komist að því að ég held bara að ég kunni ekki að labba í stigum. Bara núna í júní datt ég ístiganum í ´blokkinni minni úti á spáni með þeim afleiðingum að ég marðist verulega á bakinu ogvar með verki í margar vikur. Síðan hrundi ég líka niður í stiga í London, tók ekki eftir því að það væri stigi (hélt ég væri að labba á jafnsléttu).

Þið munið kannski líka eftir því þegar ég var í afmæli á Mama´s Taco´s og dattí stiganum þar fyrir utan og brákaði rófubeinið. Svo datt ég líka í stiga eþgar ég var úti á Portúgal með Adam fyrir 2 árum.

Þetta er bara ekki eðlilegt og ég auglýsi he´r með eftir einvherjum sem er til í að taka mig í kennslu í því að labba í stiga án þess að DETTA!!!!

smá punktar í lokin :

  • er byrjuð í nýrri vinnu
  • Fékk gælunafnið Heidi um helgina :haha:
  • Er með vinnutilboð á borðinu fyrir næsta ár:!:
  • Skólinn að byrja á fimmtudaginn
  • ég er að drepast í löppinni

» 17 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 21:07:57 / ernaþ

Svo mikill sannleikur....

 

But it´s time to face the truth

...

I will never be with you

...


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 21:37:26 / ernaþ

Rockstar Supernova!!

 

 

ÁFRAM MAGNI :D :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 00:13:05 / ernaþ

Hogar Dulce Hogar

Þá er maður komin aftur í gamlar rútínur og alveg komin aftur inn í lífið hérna heima á fallega landinu mínu. Mér finnst rosalega gott að vera komin heim og geta sofið í yndislega rúminu mínu, fengið mér göngutúr í fallega bænum mínum og drukkið ískalt íslenskt vatn þegar mig langar í það 8| :D

En ég er búin að hitta flest alla aftur... og þessi vika sem ég er búina ð vera heima er búin að vera mjög viðburðarrík og skemmtileg. Er til dæmis búin að fara á hljómsveitaræfingu hjá Grand Solution og ég verð að hrósa strákunum, þeir verða bara betri og betri með hverri æfingunni. Búin að djamma líka svolítið og kíkti meðal annars út á Gay Pride, og skemmti mér bara vel.

Núna um helgina er það svo svaka partý sko þar sem að hún litla systir mín

HREFNA

er að fara að halda upp á 20 ára afmælið sitt... og ég hlakka til að sjá alla þar :haha:

HASTA LUEGO


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6